Grenivíkurskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með brennandi áhuga á skólastarfi. Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2023.
Menntunar- og hæfniskröfur
Í Grenivíkurskóla eru um 50 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er góður starfsandi og þar er leitast við að haga skólastarfinu í sem fyllsta samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins. Meðal þess sem við leggjum ríka áherslu á er góður skólabragur, teymiskennsla, lýðheilsa og umhverfismennt.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.grenivikurskoli.is
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar 2023. Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Umsóknir skal senda í tölvupósti á netfangið grenivikurskoli@grenivikurskoli.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar gefur Þorgeir Rúnar Finnsson, skólastjóri, í síma 868-2385 eða í tölvupósti thorgeir@grenivikurskoli.is
610 Grenivík Sími á skrifstofu: 414-5413 Netfang: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 414-5410 / grenivikurskoli@grenivikurskoli.is