Grenivíkurskóla var slitið með formlegum hætti mánudaginn 4.júní. Þrír nemendur voru útskrifaðir úr 10.bekk, þau Auður, Jón Þorri og Rebekka Sól. Ásta skólastjóri fór yfir skólastarfið í vetur og þakkaði starfsfólki, nemendum og foreldrum fyrir veturinn. Þá minnti hún á mikilvægi lesturs og hvatti nemendur til að vera duglegir að lesa í sumar. Sigga Sverris hættir störfum við skólann í vor, en nú eru 52 ár síðan hún hóf kennslu við Barnaskólann á Grenivík, þá aðeins 18 ára gömul. Fyrstu nemendur Siggu voru 25 talsins. Margir þeirra mættu á skólaslitin til að fagna þessum tímamótum með kennaranum sínum. Sigga Sverris er búin að kenna þremur kynslóðum í sumum tilfellum. Þannig er hún búin að kenna bæði börnum og barnabörnum Jennýjar, Bigga Pé, Hauks Vésteins og Nönnu Stínu. Störf hennar í þágu íbúa sveitarfélagsins eru mikil og góð, hún hefur stutt bæði við nemendur og foreldra, sinnt íslenskukennslu fyrir útlendinga, verið frumkvöðull Grænfánaverkefnisins í sveitarfélaginu og hjálpað mörgum nýjum kennurum að fóta sig í starfi. Siggu voru færðar bestu þakkir og Þröstur Friðfinnsson sveitarstjóri færði henni gjafabréf frá Grýtubakkahreppi í tilefni þessara miklu tímamóta. Grenivíkurskóli verður ekki samur án hennar.
610 Grenivík Sími á skrifstofu: 414-5413 Netfang: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 414-5410 / grenivikurskoli@grenivikurskoli.is