Rithöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Sævar Helgi Bragason komu í heimasókn í Grenivíkurskóla og héldu erindi sem þau kalla "Bækur breyta heiminum". Heimsóknin er hluti af verkefninu Skáld í skólum sem Rithöfundasamband Íslands heldur utan um.
Erindið var lifandi og skemmtilegt og fjölluðu þau Eva og Sævar á fjörugan hátt um töframátt bóka og hvernig þær geta breytt heimi okkar. Nemendur fylgdust spenntir með og fengu einnig að taka þátt í að skapa sögur með hjálp svokallaðra söguteninga. Skemmtileg heimsókn og þökkum við Evu og Sævari kærlega fyrir komuna.
610 Grenivík Sími á skrifstofu: 414-5413 Netfang: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 414-5410 / grenivikurskoli@grenivikurskoli.is