Skólaárið 2024-2025 eru sex nemendur í skólaakstri. Skólabílstjóri sækir nemendur að morgni og ekur þeim heim að loknum skóla, um kl. 14:10.
Reglur um skólabíllinn
- Bifreiðastjóri ber ábyrgð á börnunum og skal sýna þeim nærgætni og umhyggju, en ber jafnframt að halda uppi aga. Verði erfiðleikar með framkomu barnanna skal það rætt við skólastjóra.
- Bifreiðastjóri skal kappkosta að gera hverja ferð sem þægilegasta fyrir farþega sína og halda áætlun eins og kostur er.
- Bifreiðastjóri skal sjá um að bifreiðin sé vel þrifin og hvetja nemendur til að ganga þrifalega um á sama hátt og krafist er í skólahúsnæði.
- Bifreiðastjóri skal sjá til þess að ekki séu of margir farþegar í bílnum. Ef nemendur í skólaakstri vilja taka með sér gesti ber forráðamönnum að ræða það við skólabílstjóra með góðum fyrirvara.
- Forráðamenn nemenda skulu sjá um að koma nemendum í skólabíl á tilsettum tíma (við þjóðveg) á leið í skólann en bifreiðastjóra er skylt, t.d. ef verður er slæmt að sjá til þess að nemendur komist á öruggan samastað. Þetta skal gert í samráði við skólastjóra ef ekki næst í forráðamenn.
- Bifreiðastjóri verður á vettvangi að taka ákvörðun um hvort fella eigi niður ferð eða stytta vegna veðurs, ófærðar eða af öðrum orsökum. Þetta skal gert í samráði við skólastjóra ef unnt er.
- Að jafnaði leggur bifreiðastjóri af stað frá skóla 10 mín. eftir að skóla líkur. Þurfi oft að bíða eftir nemanda verður rætt við foreldra.
- Ef nemandi í skólaakstri ætlar ekki að fara heim með skólabílnum þarf að tilkynna það til skólabílstjóra.
- Sími skólans er 414 5413 Sími bílstjóra er Anna Bára 894 3220, og afleysingabílstjóra Sveinn 899 9906 - Bergvin 696 3162.